Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, telur að ný staða í sveitarstjórnarmálum á höfuðborgarsvæðinu geti opnað á grundvallarbreytingar á Sorpu. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, tekur undir að tækifæri séu til breytinga og segir Sorpu hafa þanist út og verið í samkeppni við einkamarkaðinn.
Ný staða á höfuðborgarsvæðinu, þar sem Sjálfstæðismenn eru nú í leiðandi stöðu í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum, gæti skapað forsendur til að endurskoða rekstur Sorpu.
Þetta kom fram í Dagmálum Morgunblaðsins þar sem rætt var við oddvita Sjálfstæðismanna í sveitarfélögunum í kringum Reykjavík. Þar sagði Orri Björnsson, oddviti flokksins í Hafnarfirði, að samstaða um stærri mál gæti orðið auðveldari eftir kosningar.
„Selja Sorpu eða leggja niður Sorpu“
Orri sagði sveitarfélögin áfram munu keppa sín á milli um íbúa, fyrirtæki og þjónustu, en ný pólitísk staða gæti auðveldað samstarf þar sem hagsmunirnir færu saman.
„Við erum hins vegar núna komin í þá stöðu að geta unnið kannski betur saman,“ sagði Orri.
Hann nefndi Sorpu sérstaklega í því samhengi.
„Við gætum alveg mögulega náð samstöðu um það að selja Sorpu eða leggja niður Sorpu núna, því það er fullt af einkafyrirtækjum sem geta séð um þessa þjónustu og ég væri alveg til í að skoða svoleiðis hluti,“ sagði Orri.
Hann sagði slíkar breytingar auðveldari nú þegar Sjálfstæðismenn væru í leiðandi stöðu á öllu höfuðborgarsvæðinu.
„Svona hlutir geta gengið,“ sagði hann og bætti við að hið sama ætti við um samgöngumál og aðra samræmingu sveitarfélaganna.
„Sorpa hefur verið að þenjast út“
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, tók undir með Orra og sagði skýran mun hafa verið á afstöðu Sjálfstæðismanna og annarra flokka til Sorpu.
„Við höfum viljað svolítið draga úr þessu bákni,“ sagði Ásdís.
Hún sagði Sorpu hafa farið út fyrir það hlutverk sem sveitarfélögin ættu að hennar mati að einbeita sér að.
„Sorpa hefur verið að þenjast út, Sorpa hefur verið svolítið bara í samkeppni við fyrirtæki á einkamarkaði og nú eru sannanlega tækifæri til að gera einhverjar breytingar þar,“ sagði Ásdís.
Hún tengdi umræðuna við almenna sýn Sjálfstæðismanna á rekstur sveitarfélaga, samkeppni og hagræðingu. Sveitarfélögin ættu að bera sig saman, læra hvert af öðru og leita leiða til að fara betur með fé skattgreiðenda.
Urðunarstaðurinn í bakgarðinum
Hilmar Gunnarsson, nýr bæjarstjóri í Mosfellsbæ, kom einnig inn á Sorpu síðar í umræðunni. Hann minnti á að Mosfellsbær hefði lengi haft urðunarstað Sorpu í bakgarðinum.
„Við höfum náttúrulega verið með urðunarstað Sorpu í bakgarðinum hjá okkur,“ sagði Hilmar.
Hann sagði að Mosfellingar myndu ekki sætta sig við slíkt til frambúðar.
„Við munum ekki sætta okkur við það eitthvað til eilífðar,“ sagði hann.
Áður hefur Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri í Reykjavík boðað að gerð verði tilraun til að fela einkaaðilum sorphirðu í stóru hverfi í borginni og nefndi Grafarvog eða Laugardal sem möguleika í þeim efnum.

