Poppgoðsögnin Boy George vill bjarga Bretum eftir sögulegan skell í Eurovision og stígur nú fram með harða gagnrýni.
Söngvarinn Boy George féll úr leik í fyrri undanriðlinum í Vínarborg fyrr í þessum mánuði, þar sem hann keppti óvænt fyrir smáríkið San Marínó ásamt söngkonunni Senhit. Þrátt fyrir snemmbúið brottfall er kappinn hvergi af baki dottinn.
Í beinni útsendingu í morgunþætti Chris Moyles á útvarpsstöðinni Radio X lýsti hann yfir brennandi áhuga á að semja næsta framlag Breta. Bretland lenti á botninum á dögunum þegar listamaðurinn Look Mum No Computer fékk aðeins eitt aumt stig.
George skilur ekkert í vinsældaleysinu en hjólar jafnframt harkalega í keppnisformatið. Hann segir fáránlegt að „stóru fimm“ ríkin fari beint í úrslit án fyrirhafnar og spyr einfaldlega: „Hvernig er þetta eiginlega keppni?“