Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, lagði fram frumvarp um breytingu á lögum um mannanöfn á laugardag. Fimmtán þingmenn, bæði úr minnihluta og meirihluta á Alþingi, mæla fyrir frumvarpinu.
Verði það samþykkt verður stjórnvöldum heimilt að synja beiðnum um nafnbreytingar, hafi umsækjandi hlotið óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir alvarlegt brot og verið gert að sæta fangelsi í þrjú ár eða lengur.
Sigurður segir ekki eðlilegt að fólk sem hafi framið alvarlega glæpi geti falið sig á bak við nýtt nafn. Hagsmunir almennings og brotaþola vegi þyngra að hans mati.
„Við erum ekki að gera þetta þannig að þeir geti aldrei skipt um nafn, þetta er í rauninni bara á meðan þeir eru á sakaskrá og í þessum helstu þungu málum.
Hann segir erfitt að kanna hversu margir hafi breytt nafni sínu í kjölfar refsingar. Nokkur dæmi um slíkt hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum, til dæmis þegar Mouhamad Kourani breytti nafni sínu í Mohamad Thor Jóhannesson.
Sigurður Helgi segist þó einnig þekkja til tilfella sem hafi ekki ratað í fjölmiðla, þar sem brotaþolar neyðist til að sætta sig við að gerendur þeirra skýli sér á bak við ný nöfn.