Flugeldasalan skilar 80 til 85 prósentum þess fjár sem sveitin aflar árlega. Þetta kemur fram í bréfi sveitarinnar til bæjarráðs, dagsettu 7. september, sem tekið var fyrir 15. október.
Segja íbúðirnar of nálægt
Í bréfinu segir að strangari kröfur um flugeldasölu kveði meðal annars á um að minnst sextíu metrar séu að íbúðarhúsnæði. Fyrirhugaðar íbúðir verði of nálægt núverandi söluaðstöðu sveitarinnar við Hvaleyrarbraut 32.
Sveitin kveðst hafa rætt við núverandi og fyrrverandi bæjarfulltrúa sem hafi tekið undir að bærinn liðsinni henni svo íbúðabyggingin bitni ekki á flugeldasölunni.
Arkitektar og sérfræðingar í brunahönnun hafi unnið að lausn. Niðurstaðan sé steinsteypt viðbygging, tengd núverandi húsnæði, sem sveitin geti einnig nýtt utan sölutímans.
Stálgrindarhús hafi verið skoðað en nauðsynlegt sé að hafa steyptan vegg að Hvaleyrarbraut vegna öryggis ef óhapp verður. Því hafi verið talið hagkvæmara að steypa alla bygginguna.
Sveitin greiði frágang innanhúss
Samkvæmt bréfinu hafa lóðastækkun og breyting á deiliskipulagi þegar verið samþykkt. Sveitin vill að bæjarsjóður greiði bygginguna en hyggst sjálf kosta frágang innanhúss.
Í bréfinu er kostnaðurinn sagður um 125 milljónir króna. Meðfylgjandi frumkostnaðaráætlun hljóðar upp á 123,1 milljón. Þar af eru 24,6 milljónir vegna 25 prósenta óvissuálags.
Áætlunin er sögð gróf og verður endurskoðuð eftir því sem hönnun og umfang framkvæmdarinnar skýrast.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram. Beiðnin um að bærinn greiði viðbygginguna bíður afgreiðslu.