Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, minnist Guðfinns Jóns, bróður síns í hjartnæmri færslu. Guðfinnur Jón, eða Guffi eins og hann var kallaður, lést á mánudag, annan í hvítasunnu, 67 ára að aldri. Hann var sex árum eldri en Vilhjálmur.
„Guffi bróðir hefur lagt í sína hinstu sjóferð. Elskulegur bróðir minn, Guðfinnur Jón Birgisson, lést á heimili sínu 25. maí, einungis 67 ára að aldri eftir afar skammvinn veikindi, umvafinn börnum sínum fjórum og sambýliskonu.
Guffi var sjómaður alla sína ævi og fór fyrst sem skipstjóri aðeins 19 ára gamall á Reyni AK 18 sem faðir okkar átti. Það er ljóst að með löngum og farsælum sjómannsferli sínum skilaði hann íslensku þjóðarbúi miklum verðmætum og gjaldeyristekjum.
Guffi hafði sterkar pólitískar skoðanir og við áttum ófá símtölin þar sem verkalýðsmál og pólitík voru rædd af ástríðu og einlægni.“
Vilhjálmur sendir börnum Guffa, Sigurði Hafsteini, Birgi Má, Auði Örnu og Ríkharði Þóri innilegar samúðarkveðjur.
„Það var fallegt að sjá hvernig þið umvöfðuð pabba ykkar ást og umhyggju á hans síðustu stundum. Ég sendi einnig sambýliskonu Guðfinns Sigrúnu Magnúsdóttur, sem var kletturinn hans síðustu 13 árin, mínar innilegustu samúðarkveðjur, sem og Sissu sem ól Guðfinni fjögur börn. Ég veit að sorg þeirra er mikil núna.“
Vilhjálmur segir að ein af hinstu óskum Guffa bróður hans hafi verið að verða jarðsettur í Akraneskirkjugarði.
„Ég skil hann vel, enda afar fallegur og friðsæll staður. Þar hvíla nú þegar Óttar Örn sonur minn og Margrét Arnbjörg móðir mín, og ég veit að þau munu taka vel á móti Guffa bróður. Ég mun sakna bróður míns sárt. Minning hans lifir.“