Sundlaugin í Lundi í Öxarfirði hefur stendur auð og ferðamenn koma þar að læstum dyrum. Milli sundlaugar á Húsavík og Raufarhöfn í Norðurþingi eru 120 kílómetrar.
Þorsteinn Snævar Benediktsson, formaður skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings, segir að endurbætur á sundlauginni séu á framkvæmdaráætlun sveitarfélagsins. Viðgerð á henni hafi verið á stefnuskrá allra flokka í sveitarstjórnarkosningunum í vor.
Fjárhagur Norðurþings hefur staðið höllum fæti frá því að PCC hætti starfsemi á Bakka og sveitarfélagið brá á það ráð að fresta framkvæmdum, þar á meðal við sundlaugina í Lundi. Þorsteinn segir að við gerð fjárhagsáætlunar í haust skýrist hvenær laugin verður endurbætt.
Kristinn Rúnar Tryggvason, ferðaþjónustubóndi á Hóli, segir að lokun laugarinnar sé bagaleg.
„Það hefur mjög neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna. Hér er fjöldi gesta í þjóðgarðinum. Þetta er mjög vinsælt svæði fyrir hestaferðir og hestahópa. Það er afleitt að fólk hafi ekki einu sinni möguleika á að komast í sturtu.“
Viðhaldi hafi verið illa sinnt undanfarin ár og ástandið sé orðið mjög slæmt.
„Aðalmistökin voru að loka henni í upphafi. Það þurfti ekki nema lítið viðhald til þess að halda henni opinni en þegar búið er að loka er alltaf erfitt að stíga skrefið til að græja hlutina svo hægt sé að opna,“ segir Kristinn.
Þótt sundlaugin sé illa farin hefur Öxarfjarðarskóli notað hana við sundkennslu og svo verður áfram.