Bílstjórar ættu að hafa varann á sér í dag því víða er hálka á vegum.
Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa kannað aðstæður á vegum í morgun og niðurstaða þeirra er sú sama í flestum landshlutum, að hált sé á mörgum vegum. Flughált er á Mýrdalssandi.
Krapi er á Sandskeiði, Suðurstrandarvegi og Krýsuvíkurvegi. Snjóþekja er á Dettifossvegi og þungfært er á Hellisheiði eystri.