Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa tekið ákvörðun um framhaldið eftir að hún sagði af sér þingmennsku í dag. Ákvörðunin standi alveg sjálfstætt.
Áslaug tilkynnti á þingfundi í dag að hún hygðist segja af sér þingmennsku. Tilkynningin var nokkuð óvænt því Áslaug hefur verið í námsleyfi síðasta árið og aftur sæti á Alþingi í dag.
Þrátt fyrir ungan aldur er Áslaug með þeim reynslumestu í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Hún var fyrst kjörin á þing 2016, þá tæplega 26 ára gömul, og hefur síðan þá gegnt tveimur ráðherraembættum. Hún segir það standa upp úr að hafa fengið að kynnast íslensku samfélagi betur.
Áslaug laut í lægra haldi í formannskjöri á landsfundi flokksins í fyrra en segir að það sitji ekki í henni. Allt gerist af ástæðu og Sjálfstæðisflokkurinn sé í góðum höndum.
Áslaug segir að hún hafi tekið ákvörðun mjög nýlega. Hún hafi ekki hafa tekið ákvörðun um framhaldið. Þegar Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður spurði hana hvort nú tæki við sumarfrí og atvinnuleit svarar hún „Já já, við skulum sjá hvað setur.“
Þótt hún stígi af sviði stjórnmálanna segist hún ekki sjá fyrir sér að hætta að tjá sig um stjórnmál. „Stjórnmálin hafa átt öll mín fullorðinsár. Hjarta mitt slær með hugsjón og hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins. Eg verð aldrei þreytt á því að gera gott fyrir land og þjóð.“