„Staðan hefur verið þannig að ríkið gínir hér yfir öllu á þessum markaði, er bæði með fastan tekjustofn sem er í útvarpsgjöldunum, sem er skattur á okkur landsmenn, sem stækka bara og stækkar eftir því sem þjóðinni fjölgar, og síðan er það líka á auglýsingamarkaði,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í vikunni voru kvöldfréttir Sýnar lagðar niður eftir tæplega fjörutíu ára sögu, Rósa starfaði sjálf á fréttastofunni í áraraðir.
„Við erum komin á sama stað og Norður-Kórea“