„Við erum náttúrlega alsæl með þetta. Þetta er eitthvað sem við höfum talað fyrir og barist fyrir í gegnum tíðina,“ segir Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, um það að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Bókunin kveður á um heimild til að beina kvörtunum vegna brota á samningnum til eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Anna Lára segir þetta mikla réttarbót og stuðning við réttindi fatlaðs fólks til framtíðar litið.
„Þetta eykur réttarvernd vegna þess að þessi valfrjálsa bókun kveður á um auka kæruleið þegar allar kæruleiðir innanlands hafa verið fullnýttar. Þá er hægt að skjóta málum til sérfræðinefndar Sameinuðu þjóðanna um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“
Álit nefndarinnar er ekki bindandi fyrir íslensk stjórnvöld en Anna Lára telur að öll stjórnvöld sem ætli sér að gera vel í málaflokknum taki mið af því sem hún leggi til.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var lögfestur hér á landi í nóvember en þessi bókun er viðauki við hann. Anna Lára segir ánægjulegt að bókunin hafi verið fullgild svo fljótt eftir lögfestingu samningsins. Segja megi að hún sé ákveðinn lokahnykkur í baráttunni um innleiðingu hans.