Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur sent fjölskyldu Henry Nowak samúðarkveðjur og á sama tíma gagnrýnt bresk stjórnvöld.
Lögreglan í Bretlandi hefur legið undir ámæli eftir að upptökur búkmyndavélar lögregluþjóns sýndu hvernig Nowak var handjárnaður eftir að hafa verið stunginn.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ráðuneytinu.
Þar segir að hugmyndafræðileg skilyrðing og tvískipt löggæsla séu augljós einkenni menningarlegrar hnignunar. Þeim verði Vesturlöndin að hafna.
„Bandaríkin senda fjölskyldu Henry Nokwak og Bretlandsþjóð samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.
Mikil reiði ríkir í Bretlandi
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur fordæmt árásina.
Nowak lést í haldi lögreglu í desember eftir að hafa verið stunginn. Þegar lögreglu bar að garði laug morðinginn, hinn 23 ára gamli Vickrum Digwa, að Nowak hefði beitt hann kynþáttaníði.
Í kjölfarið handjárnaði lögreglan Nowak þar sem hann reyndi að ná andanum. Mikill reiði ríkir í Bretlandi vegna viðbragða og aðgerðaleysis lögreglu.
Formaður Reform í Bretlandi, Nigel Farage, hefur einnig fordæmt árásina og sagt að binda þurfi enda á fordóma gegn hvítum einstaklingum.