Um er að ræða sögulega bensínstöð frá árinu 1957 en hún var fyrsta sjálfsafgreiðslustöðin á Íslandi.
Ár er síðan bensíndælum var lokað á stöðinni. Þá sagði Magnús Hafliðason, forstjóri N1, að hann sýndi ónægju Vesturbæinga skilning.
„Maður skilur að þetta er rótgróin stöð í hverfinu og hefur þjónustað hverfið um áratugaskeið. Þá er eðlilegt að fólk vilji halda þessu áfram og sjái eftir þessu þjónustuframboði.“
Í dag fengu fastakúnnar og aðrir viðskiptavinir að kveðja þessa rótgrónu stöð. Pylsur voru grillaðar ofan í mannskapinn og allt í verslun var afgreitt á helmings afslætti, nema tóbak. Við leyfum ljósmyndum sem Viktor Freyr Arnarsson tók að tala sínu máli.