Vestmannaeyjabær ætlar að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Suðurlands í skaðabótamáli bæjarins gegn Hugin, Vinnslustöðinni og VÍS vegna skemmda á neysluvatnslögn í Vestmannaeyjahöfn.
Þetta staðfestir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í samtali við fréttastofu. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í dag.
„Bæjarráð samþykkir samhljóða að áfrýja málinu til Landsréttar enda mikilvægt að fá úr því skorið hvort þak á ábyrgð haldi á öðrum dómstigum. Sömu hagsmunir og ástæður eru enn í gildi og þegar ákvörðun var tekin um að sækja fullar bætur vegna tjónsins á vatnslögninni,“ segir í niðurstöðu bæjarráðs.
Ráðið fer með heimildir bæjarstjórnar á meðan á sumarleyfi stendur og telst málið því fullafgreitt.
Vestmannaeyjabær höfðaði skaðabótamál á hendur fyrirtækjunum vegna skemmda sem urðu á neysluvatnslögn þegar akkeri fiskiskipsins Hugins VE 55 dróst eftir botni Vestmannaeyjahafnar í nóvember 2023.
Fréttin var uppfærð með frekari upplýsingum.