Skipverjar Hvals 8 gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að aflífa langreyði, sem skjóta þurfti fjórum sinnum, eins hratt og mögulegt var. Þetta er niðurstaða rannsóknar Matvælastofnunar á málinu.
Langreyðurin var skotin með fjórum sprengiskutlum og það tók um 31 mínútu fyrir dýrið að drepast. Rannsókn Matvælastofnunar sýndi að skipverjar hefðu brugðist við samkvæmt verklagi. Í tilkynningu segir að fyrsta skotið hafi hæft dýrið innan æskilegs marksvæðis, sem og tvö af þremur endurskotum. Stofnunin hafi ekki gögn sem bendi til þess að skotmaður hefði getað skotið öðru skoti fyrr en gert var, né gripið til annarra aðgerða sem linað hefðu þjáningar dýrsins.
Hvalur hf. hafi því fylgt reglugerð um veiðar á langreyðum eða lögum um velferð dýra. Málinu sé því lokið.
„Reglugerðin er ekki skýrari en þetta“
Í reglugerð um veiðar á langreyði segir að nota skuli búnað sem tryggir að þær drepist samstundis eða að aflífun taki sem skemmstan tíma og valdi þeim sem minnstum þjáningum.
Hrönn Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar segir erfitt að segja hvað teljist eðlilegur dauðatími. Verið sé að veiða stór dýr úti á rúmsjó, við óstýrðar aðstæður.
„Veiðar á langreyðum eru villtar veiðar og þetta er ekki sambærilegt við aflífun á dýrum í sláturhúsum,“ segir Hrönn. „Reglugerðin er ekki skýrari en þetta.“
Hrönn segir að í rannsókn sem þessari séu viðbrögð skipverja metin, hvort búnaður virki og hvort dýrið sé skotið innan marksvæðis. Þá er tíminn sem tekur að endurhlaða skoðaður og tíminn sem tekur að komast aftur í skotfæri. Í þessu tilfelli hafi skipverjar brugðist við eins vel og þeir gátu.
Dýrið á að drepast samstundis
Spurð hvers vegna það hafi tekið langreyðina svo langan tíma að drepast segir Hrönn:
„Hvert tilvik er einstakt,“ segir Hrönn. „Þegar allt gengur upp á dýrið að drepast samstundis. Svo eru þarna einhver frávik sem gera það að verkum að skutullinn lendir svona í dýrinu en ekki einhvern veginn öðruvísi.“
Hún bendir á að margir þættir komi inn í veiðar sem þessar. „Það er raunveruleikinn sem við þurfum að horfast í augu við.“
Felst þá ekki þversögn í reglugerðinni ef ekki er hægt að tryggja skamman dauðatíma þótt verklagi sé fylgt?
„Þarna er komið inn á þennan ómöguleika, þú ert ekki í stýrðum aðstæðum. Svo tel ég það bara vera umræðu sem stjórnvöld þurfa að taka. Er þetta ásættanlegt eða ekki? Eru þetta veiðar sem við viljum stunda eða ekki?“