Skáldið Natasha S. hlýtur Maístjörnuna, ljóðabókaverðlauna Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Rithöfundasambands Ísland, í ár fyrir verkið Mara kemur í heimsókn. Verðlaunin voru veitt í Þjóðarbókhlöðunni rétt í þessu.
Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir:
„Sterk bók og heildstæð, ástríðufull og heiðarleg, persónuleg og pólitísk. Mögnuð lýsing á kvíða, vanmætti og varnarleysi. Ljóðmælandi lærir að lifa með Möru, að gangast við ótta sínum í martraðarkenndum heimi sem er á hvolfi. Leikurinn berst inn á hættusvæði stríðs og ógna en það er líka heimavöllur ljóðmælanda. Ófriðurinn veldur sundrungu, einmitt þegar hluttekningar og samkenndar er þörf. Áleitið verk og tímabært.“
Sló í gegn með sinni fyrstu ljóðabók
Í tilkynningu frá aðstandendum verðlaunanna segir jafnframt:
„Natasha S. fæddist í Rússlandi árið 1987. Hún flutti til Íslands árið 2012 og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir ljóð sín, pistla og hugvekjur. Hún sló eftirminnilega í gegn með fyrstu ljóðabók sinni, Máltaka á stríðstímum, en fyrir hana hlaut Natasha Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2022. Máltaka á stríðstímum var einnig tilnefnd til Maístjörnunnar 2022.
Natasha hefur verið öflugur talsmaður skálda af erlendum uppruna á Íslandi og ritstýrði ljóðasafninu Pólífónía af erlendum uppruna og ritgerðasafninu Skáldreka. Hún hefur einnig þýtt íslensk skáldverk á rússnesku.
Natasha er menntuð í blaðamennsku. Árið 2016 útskrifaðist hún frá Háskóla Íslands með BA-gráðu í íslensku sem annað mál og með sænsku sem aukagrein.“
Allar nýjar íslenskar ljóðabækur gjaldgengar
Gjaldgengar til Maístjörnunnar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2025 sem skilað var í skylduskil til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Dómnefnd skipuðu Áslaug Jónsdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins, Tómas Ævar Ólafsson fyrir hönd Landsbókasafns og Sveinn Yngvi Egilsson fyrir Háskóla Íslands.
Verðlaunafé er 700 þúsund krónur og styrkir Íslenska leikjafyrirtækið CCP hf verðlaunin að þessu sinni.
Rætt verður við Natöshu á menningarsíðum Morgunblaðsins á morgun, fimmtudag.
