Verðbólga eykst lítillega frá síðasta mánuði. Tólf mánaða verðbólga mælist 5,3% miðað við 5,2% í síðasta mánuði. Verðbólga án húsnæðis mælist 4,8%.
Verðbólga var 5,2% í síðasta mánuði og hefur verið yfir 5% allt þetta ár. Það er rúmlega tvöfalt verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem stefnir að því að verðbólga sé sem næst 2,5%.
Föt og skór lækkuðu um 4,7% og húsbúnaður og heimilistæki lækkuðu um 2,4%. Hagstofan tengir það við sumarútsölur. Orkugjafar fyrir farartæki lækkuðu um 3,6%. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði hækkaði um 0,6% og flugfargjald til útlanda um 15,7%.
Hægt er að segja kjarasamningum á almennum markaði upp í haust ef verðbólga verður yfir 4,7% í ágúst.