Veðurskipti framundan

Hinn langvarandi hlýindakafli sem hefur einkennt veðrið á Norðaustan- og Austanlands síðustu 11 til 12 daga er að renna sitt skeið, að sögn veðurfræðingsins Einars Sveinbjörnssonar. Hann segir miðvikudaginn verða síðasta daginn í núverandi veðurfari en breytingar taki við á fimmtudag.
Í Facebook-færslu útskýrir Einar að meginástæðan sé breyting á vindátt í háloftunum.
„Það sem gerist í raun, er að háloftavindurinn yfir landinu kemur til með að snúa sér. Frá ákveðinni SV-átt yfir í hægari NV-átt.“
Að sögn Einars hefur hæðarhryggur sunnan við landið beint hlýju lofti til Íslands undanfarnar vikur og skapað óvenjulegan hita, sérstaklega á Norðaustur- og Austurlandi þar sem hiti hefur víða farið yfir 25 stig. Á sama tíma hefur verið vætusamt á Suðvestur- og Vesturlandi.
Spár fyrir næstu tíu daga sýna hins vegar að veðrakerfin séu að taka breytingum.
„Hæðarfrávikið færist til suðurs og vesturs. Eins birtist hér dálítil háloftlægð norðausturundan. NV-stæður vindur í háloftunum mun beina þurrara og svalara lofti í það heila til landsins.“
Þrátt fyrir svalara loft segir Einar að breytingarnar muni einnig færa Vesturlandi betra veður.
Hann bendir á að úrkoman hafi verið afar misskipt síðustu daga, með mikilli vætu vestanlands en nær þurru veðri austanlands. Ef spár ganga eftir verði áfram fremur þurrt fyrir austan en um leið stytti upp fyrir vestan.
„Stærstu tíðindin gangi þetta eftir eru að mestu styttir upp vestantil og áfram verður fremur rigningarlítið austantil. Slaki líka í þrýstisviðinu og því hægur vindur heilt yfir.“
Einar tekur fram að um sé að ræða stóru drættina í veðurþróuninni, en nákvæmari spár um daglegt veður muni skýrast þegar nær dregur.