Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á ellefta tímanum í kvöld vegna vatnsleka í húsi á horni Bræðraborgarstígs og Bárugötu. Aðstoðarvarðstjóri slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segir að heitt vatn hafi lekið um íbúðina. Íbúðin var mannlaus því eigandinn var erlendis. Búið er að stöðva lekann og verið er að sjúga upp vatnið á vettvangi.
Þá fékk slökkviliðið annað útkall fyrr í kvöld en tveggja og hálfs árs gamalt barn hafði læst sig inni á salerni á heimili í Árbænum. Heimilisfólk náði ekki að opna dyrnar og því var kallaður á dælubíll slökkviliðsins sem er ýmsum tækjum og græjum búinn. Slökkviliðsmenn náðu að opna læsinguna með skrúfjárni. Barnið var að vonum frelsinu fegið og fjölskyldunni mikið létt.