JD Vance varaforseti Bandaríkjanna og Usha eiginkona hans eignuðust dreng í gær. Þetta er fjórða barn þeirra, fyrir eiga þau tvo drengi og stúlku sem eru öll undir tíu ára aldri.
Þetta er í fyrsta sinn í yfir 150 ár sem varaforseti Bandaríkjanna eignast barn í embætti. Vance hefur margoft og við hin ýmsu tilefni hvatt Bandaríkjamenn til að eignast fleiri börn.