Varaforseti Bandaríkjanna JD Vance og eiginkona hans Usha Vance eignuðust dreng í gær. Þetta er fjórða barn hjónanna en fyrir eiga þau tvo drengi og eina stúlku sem eru öll undir tíu ára aldri.
Þetta er í fyrsta sinn í yfir 150 ár sem varaforseti Bandaríkjanna eignast barn í embætti. Vance hefur margoft og við hin ýmsu tilefni hvatt Bandaríkjamenn til að eignast fleiri börn.