Varað við viðsjálu veiðileikfangasetti

Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) varar við veiðileikfangasetti sem getur skapað köfnunarhættu fyrir ung börn.
Um er að ræða leikfangasett frá framleiðandanum QICHEN sem samanstendur af háfi, veiðistöng og þremur fiskum. Að sögn HMS geta fiskarnir í settinu losnað og valdið köfnunarhættu.
Mynd: Vöruvaktin
Leikfangið, sem ber vörunúmerið Q03Y og heitir Children Fishing Toy, var selt í gegnum netverslunina eBay og telur HMS að það sé í umferð hér á landi.
Eigendur leikfangsins eru hvattir til að taka það tafarlaust úr notkun og farga því.
Þrátt fyrir að leikfangið sé CE-merkt telur HMS það ekki uppfylla öryggiskröfur vegna hættunnar sem það getur skapað fyrir ung börn.