Vegagerðin varar við hvassviðri við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Viðvörunin nær sérstaklega til bíla með aftanívagna og þeirra sem taka á sig mikinn vind. Vegfarendur eru beðnir að kanna ástand áður en lagt er af stað.
„Það er um að gera að hinkra. Það er mikill vindur sitt hvorum megin við Jökulsárlónið og virðist vera svolítið staðbundið,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
Vindurinn virðist þó ekki rata á mæla sem eru staðsettir nokkurn spöl frá lóninu. G. Pétur segir að Vegagerðin hafi hins vegar tekið eftir því að skilti hennar vegna bikblæðinga hafi farið að fjúka. „Okkur þótti rétt að vara við þessu.“