Lægðirnar streyma upp að Íslandi í dag og næstu daga með rigningu og einhverjum vindi. Hlýjast verður vestan til á landinu en svalara verður með norður- og austurströndinni vegna þoku eða súldar.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Suðaustlæg eða breytileg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, en hægari suðvestantil. Víða rigning með köflum eða skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands. Austlægari á morgun og dálitlar skúrir, einkum sunnan- og vestanlands, en bætir í vind norðaustanlands síðdegis með rigningu. Hiti 8 til 15 stig.