Hellissandur er á öðrum endanum við að undirbúa Almyrkvahátíðina, eða Eclipse Festival, sem verður haldin dagana 11.-15. ágúst. Bandaríska fyrirtækið IMXP stendur fyrir hátíðinni í samstarfi við íslenska teymið sem stóð að Secret Solstice hátíðinni í júní 2019. IMXP eltir uppi almyrkva og hefur haldið almyrkvahátíðir áður í Texas og Oregon.
Fulltrúar frá 75 þjóðum á hátíðinni
Mikið verður um að vera alla hátíðardagana og fjölmargt tónlistarfólk leggur sitt af mörkum, bæði íslenskt og erlent. Vísindamenn og geimfarar verða einnig á staðnum. Búið er að selja um þrjú þúsund miða á hátíðina og flestir gestir eru frá Bandaríkjunum. Hámarksfjöldi gesta á hátíðarsvæðinu er 3.333.
„Við fáum fjölskrúðugan hóp fólks alls staðar að úr heiminum. 75 þjóðir munu eiga fulltrúa á Snæfellsnesi; geimfarar, vísindamenn, rannsakendur, listamenn, músíkantar. Sólmyrkvafylgjendur hvaðanæva að úr heiminum flykkjast að,“ segir Mitch Morales, skipuleggjandi Iceland Eclipse Festival, sem vonar að Íslendingar bætist í hóp hátíðargesta.
Lengri opnunartími sundlaugarinnar og opið íþróttahús
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, segist gera sér grein fyrir því að það verði mikið að gera í bænum þegar almyrkvinn skelli á og að það muni reyna á innviðina í samfélaginu.
„Sundlaugin hjá okkur verður opin frá því eldsnemma á morgnana og fram á miðnætti. Við verðum með íþróttahúsið þar sem fólk getur komist í sturtu og fleira og fleira þannig að við erum að reyna, og svo náttúrlega allir þjónustuaðilar sem eru að byrgja sig upp. En með svona hátíð eins og þessa, þá er ég að tala um almyrkvann, þá veistu ekkert hvort það kemur einn eða tíu þúsund eða fimm þúsund eða þrjátíu þúsund.“
Fyrstur kemur, fyrstur fær á tjaldstæðinu
Kristinn segir að allt gistipláss í bænum sé uppbókað en laust sé á tjaldstæðinu og þar gildi lögmálið fyrstur kemur, fyrstur fær. Það borgi sig því að mæta snemma á staðinn. Gestir Almyrkvahátíðarinnar þurfa þó engu að kvíða, því þeim hefur öllum verið tryggt gistipláss.
„Við ráðum yfir margs konar gistimöguleikum, frá því að koma með eigið tjald og svo aðstöðu fyrir húsbíla og tjaldvagna. Við höfum einnig fengið húsnæði hjá heimamönnum fyrir gesti okkar,“ segir Mitch Morales.
Hreifst af töfrum Íslands og Snæfellsness
Upphaflega hugmyndin var að halda hátíðina á Spáni þar sem almyrkvinn verður einnig sjáanlegur.
„Eftir að hafa komið hingað hreifst ég af töfrum Íslands og Snæfellsness. Ég gat ekki hugsað mér betri stað til að sjá myrkvann. Og dásamlegur Snæfellsjökull í bakgrunninum. Ég held að það verði stórfenglegt við almyrkvann,“ segir Mitch að lokum.
Hægt er að kaupa miða á almyrkvahátíðina Iceland Eclipse Festival á vefsíðunni eclipse.is.