„Það er útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir og þrýstingurinn hefur fallið mjög hratt á landinu núna í nótt og svona í samræmi við það sem spár reiknuðu með,“ segir Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur hjá Veðurstofunni í samtali við fréttastofu nú í morgun.
Hann segir að kominn sé stormur sunnanlands en þar tóku appelsínugular viðvaranir gildi klukkan 05:00. Búið er að loka hringveginum frá Markarfljóti og að Vík í Mýrdal sem og í Öræfasveit.
„Það verða hættulegar hviður og mjög hvasst þarna syðst á landinu, sérstaklega núna undir Eyjafjöllum, í Mýrdalnum og í Öræfum. Það er appelsínugul viðvörun í gildi en svo gengur þetta meira og minna niður fyrir hádegi en þá versnar veðrið fyrir norðan og sérstaklega þá á Norðvesturlandi og Vesturlandi,“ bætir Hrafn við.
Þar verði vaxandi norðaustan- og norðanátt, kólnandi veður og úrkoma.
„Slydda, snjókoma og rigning á láglendi til að byrja með en breytist í snjókomu, slyddu og stórhríð á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum.“