Þá segjum við frá ferðum Bandero, skips aðgerðarsinnanna í Paul Watson Foundation sem er snúið aftur inn í íslenska lögsögu en skipverjar freista þess að stöðva hvalveiðar Hvals hf.
Einnig fjöllum við um þá staðreynd að í dag eru fimmtán ár liðin frá hryðjuverkunum sem framin voru í Útey í Noregi. Hér á landi fer fram minningarathöfn í Vatnsmýrinni.
Lögreglan á Akureyri býst við að töluverður fjöldi fólks muni leggja leið sína norður um verslunarmannahelgina. Við fræðumst um undirbúninginn fyrir norðan.
Í sportpakka dagsins er það svo markaregn í Bestu deild kvenna frá því í gær og undanúrslitin í Mjólkurbikarnum hjá körlunum.