Körfuknattleikskonan Hanna Þráinsdóttir er gengin til liðs við hollenska úrvalsdeildarfélagið Leiden.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Hanna, sem er 28 ára gömul, kemur til félagsins frá KR þar sem hún lék á nýliðnu keppnistímabili.
Hún er uppalin hjá Haukum í Hafnarfirði en hefur einnig leikið með ÍR, Aþenu og Skallagrími á ferlinum og þá lék hún einnig með Georgian Court-háskólanum í þrjú ár og New York-háskólanum í tvö ár.
Hanna skoraði 12 stig að meðaltali í úrvalsdeildinni í vetur, ásamt því að taka níu fráköst og gefa þrjár stoðsendingar en KR hafnaði í fjórða sæti deildarinnar og féll úr leik í átta liða úrslitum Íslandsmótsins eftir tap gegn Keflavík í oddaleik.
Leiden hafnaði í sjöunda sæti af tíu liðum í efstu deild Hollands á keppnistímabilinu en liðið vann átta leiki og tapaði 19.