Úr verk­fræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja inn­sæinu“ - Vísir

Úr verk­fræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja inn­sæinu“ - Vísir

Úr verk­fræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja inn­sæinu“ - Vísir

Margrét Sól er sjálfmenntuð myndlistarkona, fædd og uppalin í Reykjavík, en leið hennar inn í listina var langt frá því að vera bein. Hún er með meistaragráðu í heilbrigðisverkfræði og starfaði hjá Össuri þar til haustið 2025 þegar hún ákvað að kveðja verkfræðina, fylgja innsæinu og einbeita sér að listinni.

Ákvörðunin var stór en lærdómurinn sömuleiðis. „Lífið er stutt. Ef manni líður eins og tíminn sé að renna frá manni í stað þess að maður sé að gera það sem mann langar til og nærist á, þá er það merki um að breyta til,“ segir Margrét Sól.

Hún segir jafnframt mikilvægt að taka lífið ekki of hátíðlega. Það sé í góðu lagi að skipta um skoðun, jafnvel oftar en einu sinni. „Þú þarft ekki að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú ert tvítugur og vera svo fastur í því út ævina. Mesta áskorunin er klárlega að þora. Það er ekkert auðvelt að hoppa út í djúpu laugina, sérstaklega þegar maður er á frábærum vinnustað með æðislegu fólki. En stundum verður maður bara að fylgja innsæinu.“

Hér má sjá nokkur sýnishorn af verkum Margrétar Sólar.Margrét Sól.

Sköpunin býr til töfrana

Það sem heillar Margréti Sól mest við sköpunina er gleðin sem verður til í ferlinu, bæði hjá henni sjálfri og þeim sem fær verkið. „Það er svo gaman þegar maður getur blandað saman hugmyndum og fundið útfærslu sem hittir naglann á höfuðið. Kannski elskar manneskjan ákveðinn stíl og vill blanda honum saman við einhverja hugmynd. Þá getur maður búið til eitthvað einstakt og persónulegt sem vekur mikla gleði.“

Hægt er að fylgjast með verkefnum Margrétar Sólar á margretsol.is, Instagram og TikTok.

Að hennar mati þarf ekki mikið til að breyta hversdagslegum hlut eða rými. Stóll getur einfaldlega verið stóll og veggur í barnaherbergi getur verið einlitur. Um leið og sköpuninni er hleypt að getur útkoman hins vegar orðið allt önnur. „Ef þú málar til dæmis uppáhaldsfígúrur eða nafn barnsins á vegginn ertu allt í einu búinn að búa til ákveðna töfra í annars venjulegu herbergi.“

Í bakgrunni má sjá vegg málaðan með Clay kalkmálningu.

Hvað er skemmtilegasta verkefni sem þú hefur tekið að þér með penslunum hingað til?

„Vá þegar stórt er spurt. Þegar kemur að heilmáluðum veggjum þá er það klárlega kalkmálningin, bæði ferlið að mála með þeim og sjá útkomuna var ótrúlega gaman. En þegar kemur að listinni þá er það alltaf uppáhalds að mála með olíumálningunni á striga, það er alltaf klassískt og skemmtilegt.“

Heimilið á að kalla fram „ahh“-tilfinningu

Þessa dagana er Margrét Sól í miðri hreiðurgerð og undirbýr komu barns. Hún vinnur mikið heima og fram undan er fæðingarorlof. Fyrir vikið hefur hún hugsað mikið um hvaða tilfinningu heimilið eigi að kalla fram. „Heimilið verður að vera staður þar sem maður finnur fyrir ró og hlýju. Markmiðið er að geta labbað inn í hvert rými og hugsað strax: Ahh, hér er gott að vera.“

Þótt Margrét Sól sé þekkt fyrir að vera óhrædd við liti kom hún sjálfri sér dálítið á óvart þegar kom að því að velja liti á eigið heimili.

Hún prófaði fjölmarga liti og segist meðal annars hafa verið með bláar, grænar, appelsínugular og bleikar prufur. Þegar hún fór að dvelja meira í rýmunum og finna stemninguna færðist hún hins vegar nær rólegri og örlítið hlutlausari tónum.

Það þýðir þó alls ekki hvíta veggi.

„Margir hugsa kannski að örugga leiðin sé að mála alla veggi hvíta, en það er alls ekki það sem ég á við með hlutlausum litum. Það er reyndar enginn veggur hvítur hjá mér.“

Bleikt, hör og kalkmálning

Í alrýmið og eldhúsið valdi Margrét Sól litinn 1/4 Hör frá Slippfélaginu, sem hún lýsir sem hlutlausum, mjúkum og róandi tóni. Í anddyri og gang varð Mildur 2 fyrir valinu. „Það er svo róandi bleikur litur. Mér finnst hann alveg æðislegur.“

Í stofunni langaði hana að prófa kalkmálningu. Fyrst varð Calce fyrir valinu, bjartur, kremaður og hlýr litur. Eftir að hafa dvalið í rýminu um tíma fann hún þó að hana langaði í meiri dýpt, sterkari lit og meira áberandi áferð. Þá fór ein umferð af Clay kalkmálningu yfir.

„Clay er mjög hlýr brúnbleikur litur og með því að fara bara eina umferð fékk ég meiri hreyfingu og áferð á vegginn. Þetta er núna uppáhaldsrýmið mitt heima. Það gefur svo rosalega góða stemningu og hlýju og tónar mjög vel við litina í rýmunum í kring.“

Kalkmálningin hefur raunar heillað hana svo mikið að líklegt er að fleiri veggir fái sambærilega meðferð síðar. „Í fyrsta lagi var ótrúlega gaman að mála með henni. Ég elska áferð og allt náttúrulegt og féll alveg fyrir því hvað kalkið er lifandi og gefur rýminu mikla hreyfingu. Núna horfi ég á venjulegu máluðu veggina mína og þeir virka næstum flatir í samanburði við kalkið.“

Í vinnustúdíóið valdi Margrét 1/4 Hör lit en setti Calce kalkmálningu á tvo veggi. „Það gerir svo mikið fyrir rýmið,“ segir hún.

Í vinnustúdíóinu vildi hún hafa bjartan og tiltölulega hlutlausan grunn svo umhverfið keppti ekki við listaverkin. Þar valdi hún aftur 1/4 Hör en setti Calce kalkmálningu á tvo veggi. „Það gerir svo mikið fyrir rýmið. Það kveikir einhvern veginn á sköpunartilfinningunni að vera innan um svona lifandi áferð og búa til listina mína þar.“

Tólfta litaprufan varð sú síðasta

Svefnherbergið reyndist meiri áskorun. Þar sá Margrét Sól fyrir sér dökkan og róandi bleikan tón án þess að liturinn yrði of áberandi.

Prufurnar urðu margar.

„Þegar ég var komin með örugglega tólftu prufuna upp í rýminu gafst ég upp og fór til Rúnars í Slippfélaginu í Skútuvogi. Ég sýndi honum það sem ég var komin með og sagði að mig langaði í aðeins dekkri og brúnni bleikan lit.“

Eftir tólf prufur fór Margrét Sól í Slippfélagið þar sem starfsmaður fann litinn NCS S 4030-Y90R sem hún féll fyrir á svipstundum.

Rúnar fann litinn NCS S 4030-Y90R og í þetta skiptið sleppti Margrét Sól meira að segja prufunni. „Ég keypti bara magnið sem ég þurfti og málaði beint, bæði loftið og veggina. Það kom fullkomlega út.“

Reynslan undirstrikar að hennar mati hversu miklu góð ráðgjöf getur skipt, sérstaklega þegar unnið er með ólík efni og yfirborð. Sjálf fæst hún við nánast allt sem hægt er að mála, striga, veggi inni og úti, húsgögn, málma, rúður og spegla. „Þá er mjög dýrmætt að geta farið í Slippfélagið og spurt sérfræðingana með hverju þeir mæla. Ég vil skapa gæðaverk sem endast og þá gengur ekki að nota bara eitthvað. Undirbúningurinn og réttu efnin skipta gríðarlega miklu máli fyrir það hvernig verkið kemur út og hversu vel það endist.“

Áferðin ekki síður mikilvæg en liturinn

Litir eru þó aðeins hluti af heildarmyndinni. Margrét Sól leggur mikla áherslu á áferð og segir hana geta gjörbreytt upplifuninni af rými. „Þetta er svolítið eins og þegar þú sérð listaverk á netinu og ferð svo á sýningu og sérð það í eigin persónu. Upplifunin er allt önnur.“

Markmiðið er því að fylla heimilið af mismunandi hlýjum áferðum. Viðarhúsgögn, leir- og steinpottar, hörgluggatjöld og gróf áklæði spila þar saman. 

Stofan fékk eina umferð af kalkmálning í litnum Clay.

Framkvæmdirnar hafa þó ekki allar verið jafn rómantískar og litavalið. „Það kom mér á óvart hvað það eru margir litlir hlutir sem þarf að gera og maður gerir ekki endilega ráð fyrir. Allur frágangurinn við að taka niður og setja upp veggi, spartla og pússa tekur tíma. Svo vanmat ég líka aðeins hversu erfitt það er að gera þetta þegar maður er kominn sex eða sjö mánuði á leið,“ segir hún og hlær.

Margir eiga erfitt með að velja liti og óttast að sjá eftir ákvörðunum. Áttu einhver ráð fyrir þá sem standa frammi fyrir litavali?

„Ég stóð sjálfa mig af því að veltast of mikið um þessar ákvarðanir en það er alltaf hægt að mála aftur og að fylgja innsæinu. Ég hef áður verið með Hör upp á vegg en þegar ég setti hann við hliðina á appelsínugulu og bláu prufunum þá leit hann mjög skringilega út. Ég treysti bara innsæinu og valdi hann og finnst hann alveg æðislegur á veggjunum í dag.“

Þar sem barnið er ekki fætt valdi Margrét Sól 1/4 Hör til að byrja með enda hlutlaus og róandi litur án þess að vera hvítur. Seinna meir má mála annan lit.

Barnaherbergið fær að þróast með barninu

Barnaherbergið er enn í mótun. Margréti Sól langar að lokum að gera það lifandi, litríkt og töfrandi en ætlar ekki að flýta sér. „Mér fannst ég þurfa að fá barnið til mín og kynnast því aðeins áður en ég ákveð hvað fer á veggina. Þess vegna valdi ég 1/4 Hör til að byrja með. Hann er hlutlaus og róandi án þess að vera hvítur.“

Þegar barnið eldist sér hún hins vegar fyrir sér meiri liti og skemmtilega vegglist. Fyrst um sinn skiptir notaleg stemning mestu máli, ekki síst góð lýsing.

Í herberginu eru meðal annars lampi sem móðir Margrétar Sólar föndraði fyrir hana þegar hún var lítil og tveir lampar sem hún og kærastinn hennar hafa föndrað sjálf. Annar er býflugnabú og hinn loftljós í laginu eins og loftbelgur.

„Mér finnst persónulegir og heimagerðir hlutir gera svo mikið fyrir heimilið. Ég kem líka úr mjög sterkri föndurfjölskyldu,“ segir hún.

„Prófaðu það bara“

Margrét Sól er sannfærð um að litir hafi áhrif á líðan og stemningu. „Alveg hundrað prósent. Það breytir rosalega miklu hvernig rými eru máluð. Maður finnur til dæmis mikinn mun á köldum, gráum tónum og hlýrri litum.“

Þessa nálgun má líka sjá í því hvernig hún deilir verkefnum sínum á samfélagsmiðlum. Þar vill hún sýna fólki að sköpun þurfi hvorki að vera flókin né frátekin fyrir þá sem telja sig sérstaklega listræna.

„Ég reyni að leggja áherslu á að allir geta allt ef þeir prófa og æfa sig. Ég held að fullt af fólki langi til að vera meira skapandi og búa til hluti sjálft en haldi að það sé miklu erfiðara og flóknara en það er. Þegar ég sýni ferlið fær fólk kannski trú á að það geti þetta alveg líka.“

Maður Margrétar Sólar, Jökul Jónas Kristinsson sem er pípulagningarmaður, lagði utanáliggjandi lagnir að ofnunum með koparfestingum til að skapa flott „industrial look“. 

Sem dæmi nefnir hún manninn sinn, Jökul Jónas Kristinsson, sem er pípulagningarmaður. „Hann lagði utanáliggjandi lagnir að ofnunum með koparfestingum til að skapa svona flott „industrial look“. Auk þess bjó hann til fatahengi í anddyrinu úr lögnum sem hann raðaði saman. Þar fyrir neðan útbjó hann lítinn snaga fyrir hundaólina.“

Fatahengi úr lögnum sem Jökull Jónas raðaði saman. Fyrir neðan er lítill snagi fyrir hundaólina.

Og hvað ætti fólk þá að gera ef það langar að hleypa aðeins meiri sköpun inn á heimilið?

Byrja smátt segir hún. „Taktu húsgagn, blómapott eða eitthvað annað heima hjá þér sem þú ert ekki lengur alveg að fíla og málaðu það. Það þarf ekkert að vera flókið. Það er ótrúlega gaman að gefa hlutum nýtt líf – og svo er líka svo gaman að geta sagt: Ég gerði þetta.“

Sama hugsun gildir um litina á veggjunum. Margrét Sól hvetur fólk til að festast ekki um of í því hvað teljist öruggt eða rétt. „Ef þú átt þér uppáhaldslit eða langar að prófa að mála herbergi í lit sem þú ert ekki vön eða vanur, prófaðu það bara. Lífið er ekki svona alvarlegt.“

Eitt og annað:

Litur sem þú færð aldrei nóg af?

Fjólublár.

Kalkmálning í einu orði?

Spennandi.

Veggur eða húsgagn sem þig langar mest að taka næst?

Vegglist í barnaherbergið.

Nýtt eða endurnýtt?

Endurnýtt og heimagert!

Hvað verður mikilvægast í barnaherberginu – litir, birta eða notaleg stemning?

Stemningin.

Hvað gerir heimili að heimili fyrir þig?

Að hafa það persónulegt, búa sjálfur til skrautmuni og húsgögn og fylgja ekki bara trendum.

Eitt og annað:

Litur sem þú færð aldrei nóg af?

Fjólublár.

Kalkmálning í einu orði?

Spennandi.

Veggur eða húsgagn sem þig langar mest að taka næst?

Vegglist í barnaherbergið.

Nýtt eða endurnýtt?

Endurnýtt og heimagert!

Hvað verður mikilvægast í barnaherberginu – litir, birta eða notaleg stemning?

Stemningin.

Hvað gerir heimili að heimili fyrir þig?

Að hafa það persónulegt, búa sjálfur til skrautmuni og húsgögn og fylgja ekki bara trendum.

#listina #maður #stundum #verkfræðinni #verður


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262929626d/ur-verk-fraedinni-i-listina-stundum-verdur-madur-bara-ad-fylgja-inn-saeinu-

📰 Aðrar fréttir

Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 1
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
Yfirvöld í Kanada lýsa alvarlegu atviki sem leiddi til stórbruna í herstöð í Alberta sem stórslysi. Stjórnvöld hafa staðfest að nokkrir séu látnir og ...
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
Þetta segir hinn þrítugi tónlistarmaður Elvar Smári Júlíusson um nýju plötuna sína Hver og einn verður að ráða sínumnæturstað sem kom út 9. október en...
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
Greint hefur verið frá því að um 1.800 manns hafi verið handtekin á mótmælunum víða um Frakkland og um 500 lögreglumenn og slökkviliðsmenn séu slasaði...
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gr...
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
📅 18.10.2026 👁️ 1
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar í Facebook-færslu eindregið við því að fólk verði á ferðinni á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs í kvöl...
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
Bæði Isavia innanlandsflugvellir ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vara við áformum sem felast í tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir hinn svokal...
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
📅 18.10.2026 👁️ 1
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
Maðurinn sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi. Hann var á ferð með hó...
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.  Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast...
„Ég elska Obbu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
„Ég elska Obbu“ - Vísir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, var í ítarlegu viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi...
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill að borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15. Þetta segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar segir hún að m...
Upplausn andsetinna stjórnvalda
📅 18.10.2026 👁️ 2
Upplausn andsetinna stjórnvalda
Upplausn andsetinna stjórnvalda Throstur18. október 2026InnlendarLeave a Comment Andsetið Alþingi Þröstur Jónsson ritar að austan. Upplausn og villigö...
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
📅 18.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin slóu í gegn á sínum tíma með ódauðlega persónu Georgs Bjarnfreðarsonar í forgrunni sem Jón Gnarr gæddi ævarandi ...
Parisians wake up to protest damage and looted shops
📅 18.10.2026 👁️ 2
Parisians wake up to protest damage and looted shops
Violence broke out across France on Saturday during the latest day of demonstrations against conditions in schools and the cost of living.
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
Í Facebook-færslu segir slökkviliðið að 89 útköll á sjúkrabíla hafi verið skráð. Útköll á dælubíla voru þá sjö talsins og þar af þrjú vegna roktjóns. ...
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
📅 18.10.2026 👁️ 0
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
Buggy safari operators in Lanzarote face police checks after Teguise’s mayor admitted the council could not confirm whether companies using local rura...
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
En fyrst verður fjallað um vantraust og stífni í samskiptum ríkis og sveitarfélaga með Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í Garðabæ og nýkjörnum formann...
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
📅 18.10.2026 👁️ 2
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
Í útjaðri Þingholtanna í Reykjavík gætir fréttnæmrar frjósemi. Í garði leikskólans Laufásborgar, hefur stærðarinnar tré, hrossakastanía, myndað aldin ...
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
📅 18.10.2026 👁️ 2
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
The Green Party leader said, while he wanted to amend it, the motion would stand until 2028.
„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir
Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yf...
Auðmýkt
📅 18.10.2026 👁️ 3
Auðmýkt
Auðmýkt Eitt helsta ein­kenni nútíma­mann­eskj­unnar er að vita allt best. Eitt helsta ein­kenni nútím­ans er upp­lýs­inga­óreiða, og eitt helsta ein­...
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur beint því til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að sjá til þess framvegis að sakborningar fái úthlutað þeim verje...
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 3
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
Brian May received a surprise honour for his environmental and conservation work as Starmus opened in Santa Cruz de Tenerife last night, Saturday 17th...
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
📅 18.10.2026 👁️ 3
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
Around 1,800 people were arrested after nationwide protests saw outbreaks of violence and vandalism.
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
📅 18.10.2026 👁️ 2
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
The flying instructor has been described as "a gentleman and an experienced aviator" by former students.
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
📅 18.10.2026 👁️ 3
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í sjö útköll í gær og í nótt, þar af að minnsta kosti þrjú vegna roktjóns. Þá var slökkvilið kallað út vegna vatns...
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
„Ég fer í reglubundna skimun í nóvember á síðasta ári,“ segir Sólveig Jónsdóttir, sem greindist með brjóstakrabbamein í maí. „Það sést ekki neitt og a...
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
Lögregla rannsakaði þrettán mansalsmál í fyrra en fékk ábendingar um og kannaði 76 til viðbótar. 44 mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar. Breskur sérf...
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 3
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
Three motorcyclists were taken to hospital after a collision involving their bikes and a car in south Tenerife yesterday (Saturday), at 12.45pm on the...
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
Gamanmyndin Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum 18. október 1986 og fagnar því fertugsafmæli í dag en í tilefni dagsins greinir Borgarle...
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum Fjölskyldan á góðri stunduBaxter lést aðeins fjögurra ára gamall Mynd: Instagra...
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent fore...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 3
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu Hamarsbraut 4 Bjart og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í hjarta Hafnarfjarðar er ...
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum Fréttin18. október 2026InnlendarLeave a Co...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 3
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósam...
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 3
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 3
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
📅 18.10.2026 👁️ 3
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
Yvette Cooper also announces £140m investment in England's urgent care system, ahead of winter.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 3
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...