Uppsagnir eru í farvatninu hjá fréttastofu Sýnar, einkum meðal starfsfólks sem kemur að framleiðslu og flutningi frétta í sjónvarpi. Þetta kemur fram í skilaboðum Herdísar Drafnar Fjeldsted, forstjóra Sýnar, til starfsfólks frá því í dag.
Greint var frá því fyrr í dag að Sýn sendi sinn síðasta fréttatíma út í kvöld. Þá hættir þátturinn Ísland í dag enn fremur.
„Ákvörðunin hefur því miður í för með sér fækkun starfa hjá Sýn, einkum meðal starfsfólks sem kemur að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi. Samtöl við þau sem breytingarnar varða fara fram í kjölfar þessarar tilkynningar,“ skrifar Herdís í skilaboðum til starfsfólks.
Boðað verður til starfsmannafundar síðar í dag þar sem farið verður yfir málið.
„Þetta verður erfiður dagur fyrir starfsfólk Sýnar, en fyrst og fremst fyrir þau sem breytingarnar snerta með beinum hætti. Við biðjum ykkur um að sýna hvert öðru tillitssemi og stuðning,“ skrifar Herdís.
Starfsmenn sem fréttastofa hefur rætt við segjast vita lítið um framhaldið. Fólk hefur ekki verið látið vita hvenær starfsmannafundurinn verður haldinn.
Fréttin hefur verið uppfærð.