Alls hafa 29 stöðugildi verið lögð niður hjá Bláa lóninu í dag, að sögn forstjórans Sigríðar Margrétar Oddsdóttur.
„Við erum um þessar mundir að kynna skipulagsbreytingar fyrir starfsmönnum Bláa lónsins sem fela það í sér að við erum að leggja niður 29 stöðugildi. Við erum að flytja 55 starfsmenn á milli sviða en svo erum við líka að ráða í ný störf sem ekki voru til innan félagsins,“ segir hún í samtali við mbl.is.
„Þetta eru breytingar sem snúa fyrst og fremst að höfuðstöðvum félagsins.“
Stöðugildum fækkar úr 807 í 778
Í tilkynningu frá félaginu segir að heildarfjöldi stöðugilda hjá samstæðunni fækki úr 807 í 778 við breytingarnar og að eftir þær starfi alls 116 í höfuðstöðvum félagsins.
Engar breytingar hafi verið gerðar á rekstri dótturfélaga innan samstæðunnar.
Þá er haft eftir Sigríði að markmiðið sé að skerpa á þjónustuhlutverki móðurfélagsins við dótturfélög þess.
„Við viljum gera skilin á milli kjarnastarfsemi og stoðstarfsemi skýrari, auka áherslu á sölu og markaðssetningu með tækni, tryggja örugga framkvæmd þróunar- og fjárfestingaverkefna en á sama tíma sækja nauðsynlega hæfni til þess að ná árangri í framtíðinni,“ er enn fremur haft eftir forstjóranum.
„Í dag sjáum við á eftir góðu samstarfsfólki sem hefur staðið sig mjög vel og við óskum alls hins besta.“
Fréttin hefur verið uppfærð.