Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vill færa fjármuni sem voru eyrnamerktir fyrirhugaðri færslu hringvegar um Egilsstaði og gerð hringtorgs, í það að flýta framkvæmdum við veginn um Öxi. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings segir að hún finni fyrir tómlæti og að íbúar landshlutans upplifi sig sem afgangsstærð, á þá sé ekki hlustað. Framhald síðari umræðu um samgönguáætlun er á dagskrá þingfundar í dag.
„Það sem er verið að gera er verið að flytja fjármagn innan sama svæðis yfir í annað verkefni í staðinn fyrir að gera, eins og við höfum lagt áherslu á, að það yrðu settir auknir fjármunir inn á svæðið,“ segir Dagmar Ýr.
Hún hafði vonast eftir auknu fjármagni en ekki að það sé flutt milli verkefna. Auk þess telji hún að fjármunirnir nægi ekki til þess að ráðast í framkvæmdir á Öxi, sem sé stórt verkefni. „Og í rauninni er ekki verið að setja neina raunverulega fjármuni í þá framkvæmd fyrr en á næsta tímabili áætlunarinnar.“
Engin svör með Fjarðarheiðargöng
Ljóst er að það eru mörg brýn samgönguverkefni í landshlutanum og fátt er um svör, segir Dagmar Ýr, meðal annars varðandi Fjarðarheiðargöng, sem eru fullhönnuð og tilbúin til útboðs en engin svör fást um hvenær útboðið hefst.
„Það kom okkur dálítið á óvart í þessu nefndaráliti að það er ekki tekin nein skýr afstaða gagnvart þessari afskaplega mikilvægu framkvæmd hér á Austurlandi. Já, við upplifum það að við verðum hreinlega útundan og það sé ekki á okkur hlustað.“