Ný verknámsaðstaða Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verður reist í tveimur áföngum og hefjast framkvæmdir næsta vetur.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands.
Viljayfirlýsing mennta- og barnamálaráðuneytisins, sveitarfélagsins og skólans þess efnis var undirrituð í dag, en uppbyggingin er hluti af eflingu verknáms á landsbyggðinni.
Sveitarfélagið Skagafjörður mun hafa umsjón með framkvæmdum á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslu ríkisins og mun ríkissjóður greiða 60% kostnaðar við framkvæmdina en sveitarfélögin á Norðurlandi vestra 40%.
Uppbygging fjögurra verknámsskóla
Samhliða verður ráðist í framkvæmdir við þrjá aðra verknámsskóla, eða Verkmenntaskólann á Akureyri, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Menntaskólann á Ísafirði.
„Til staðar eru uppsafnaðar fjárheimildir sem nýtast við fjármögnun verkefnanna fjögurra. Fráteknar fjárheimildir fyrri ára og fjárheimildir í gildandi fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 í uppbyggingu verknámsskóla eru tæpir fimm milljarðar (4.967 m.kr.). Þær nýtast í uppbyggingu verknámsskólanna fjögurra og uppbyggingu verknámsaðstöðu Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem er langt komin," segir í tilkynningunni.