Unnur Brá Konráðsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Skessuhorn greinir frá.
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlistans undirritaði málefnasamning í dag. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá fulltrúa í sveitarstjórn en Borgarbyggðarlistinn tvo. Samanlagt hafa flokkarnir fimm fulltrúa af níu í sveitarstjórn.
Unnur Brá sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 2009–2017 en hún var forseti Alþingis árið 2017. Síðan þá hefur hún m.a. verið aðstoðarmaður ríkisstjórnar 2018–2020 og aðstoðarmaður umhverfisráðherra 2022–2024.
Unnur Brá var sveitarstjóri Rangárþings eystra 2006–2009.