Dæmi eru um að ólögráða ungmenni geti keypt og sótt áfengi hjá netverslunum án þess að vera spurð um skilríki. Móðir 17 ára drengs segir ólíðandi að aðgengi unglinga að áfengi sé svo auðvelt.
Unglingar nýti óspart netverslanir til áfengiskaupa
Á menningarnótt hafði lögregla afskipti af á fjórða tug ungmenna vegna áfengisdrykkju. Í kjölfarið töluðu yfirlögregluþjónn, framkvæmdastjóri Samfés og fleiri um að drykkja unglinga væri að færast í aukana, meðal annars með tilkomu netverslana.
Móðir 17 ára drengs segir að sonur hennar og vinir hans nýti netverslanir óspart. Hún vildi ekki koma fram undir nafni.
„Þau fengu tvítugan strák til að stofna aðgang inn á Smáríkið.is. Svo eru þau með aðgang að þessum aðgangi og ef þau ætla að versla áfengi nota þau þennan aðgang. Þau greiða samt með sínum kortum og svo er kannski einhver einn sem fer inn og sækir.“
Hún segist hafa verið grunlaus þar til fyrir stuttu þegar hún fór að rýna í kortafærslur sonar síns. Á tveggja mánaða tímabili hafði kortið verið notað átján sinnum til að greiða fyrir áfengi á netinu, fyrir tæplega 147 þúsund.
„Þessi hópur sem hann er oftast að gera þetta með, það er misjafnt hvað þeir eru margir. Alveg upp í sjö til níu manns og það er alveg frá fimmtán ára,“ segir hún og heldur áfram:
„Og samkvæmt honum er fullt af krökkum sem gera þetta.“
„Aldrei spurt um skilríki“
Samkvæmt 18. grein áfengislaga er óheimilt að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem er yngri en 20 ára og þegar ástæða er til að ætla að kaupandi eða viðtakandi áfengis hafi ekki náð þessum aldri skal ávallt biðja um skilríki með mynd.
„Ég spurði strákinn minn hvort það væri aldrei spurt um skilríki og nei, hann vildi ekki meina það. Þá spurði ég hvort þetta væri alltaf sama manneskjan sem væri að afgreiða, en svo var ekki. Þegar þetta er orðið svona auðvelt ætti það ekki að koma neinum á óvart að unglingadrykkja sé búin að aukast svona mikið,“ segir hún.
„Leitt að heyra af þessu máli“
Forsvarsmenn Smáríkisins báðust undan viðtali. Í skriflegu svari þeirra segir að þeim þyki leitt að heyra af þessu máli. Allir sem kaupi áfengi hjá þeim fari í gegnum tvöfalt skilríkjaeftirlit, bæði við innskráningu á vefverslun og við afhendingu.
Ekki sé þó hægt að sannreyna aldur út frá greiðslukortum þar sem þeim upplýsingum er ekki miðlað til seljanda. Brýnt sé fyrir starfsfólki að afhending áfengis til ólögráða ungmenna sé ólögleg. Sérstök skoðun fari fram á því sem gerðist og hvernig hægt er að koma í veg fyrir að það endurtaki sig.
Foreldrar fylgist með bankareikningum barna sinna
„Þetta kom mér á óvart af því ég hafði ekki upplifað barnið mitt drukkið. En ég fylgist með bankareikningnum hans. Og það eru ekkert allir foreldrar sem gera það. En ég myndi mæla með því að allir foreldrar fylgist með, eða öðru hvoru, með reikningum barna sinna.“
Hvað myndir þú vilja sjá gerast í kjölfarið á þessari umfjöllun?
„Að starfsmenn þessara netverslana með áfengi að það séu harðari reglur í afhendingu og að starfsmenn beri ábyrgð. Og einnig að yfirvöld fari að stíga inn í og geri eitthvað í þessu máli.“