Reykvísk kona, fædd árið 2005, hefur verið ákærð fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrot. Í ákæru Héraðssaksóknara er hún sögð hafa fimmtudaginn 27. mars árið 2025, í félagi við karlmann, reynt að taka á móti og hafa í vörslu sinni tæplega 700 g af sterku kókaíni. Fíkniefnin voru falin í hliðum pappakassa sem sendur var með FedEx hraðsendingu frá Dóminíska lýðveldinu, með viðkomu í Bandaríkjunum, þar sem sendingin var tekin til skoðunar af yfirvöldum og efnin fjarlægð.
Ung reykvísk kona í vanda eftir að hafa tekið á móti FedEx hraðsendingu frá Dómíníska lýðveldinu