Hin 23 ára Saskia Reeves-Priestley var í vinnunni þegar hún varð skyndilega mjög veik og hneig niður. Hún hafði fram að því talið sig vera við hestaheilsu, enda æfði hún knattspyrnu fjórum sinnum í viku og var í góðu líkamlegu formi.„Ég fékk skyndilega mikinn svima, fann fyrir ógleði og hjartsláttarónotum og mér varð mjög heitt,“ segir Saskia í samtali við BBC.
Ung og hraust kona hneig skyndilega niður – Læknar hafa vaxandi áhyggjur af lúmskum vítamínskorti