Einnig ræðum við tillögur Viðskiptaráðs um hækkun hámarkshraða á þjóðvegum en fullyrt er að slíkt gæti sparað milljónir klukkustunda og milljarða króna. Við heyrum álit sérfræðings á þessum pælingum.
Að auki verður rætt við yfirækni SÁÁ sem óttast að þeim fjölgi sem glíma við spilafíkn í kjölfar HM í fótbolta.
Í sportinu er það svo opna breska meistaramótið í golfi sem hófst í Skotlandi í morgun og úrslitin á HM í gærkvöldi.