Landskjörstjórn leggur allt kapp á að útbúa kynningarefni fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um framhald aðildarviðræðna og þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin 29. ágúst.
Tryggja þarf að kynningarefnið verði aðgengilegt með góðum fyrirvara, segir Ástríður Jóhannesdóttir formaður Landskjörstjórnar, og það þarf að endurspegla ríkjandi sjónarmið á hlutlausan hátt.
„Sú vinna er reyndar þegar hafin hjá okkur. Við leggjum allt kapp á að kynningarefnið verði tilbúið tímanlega svo kjósendur geti kynnt sér málefnið frá öllum hliðum.“
„Við verðum alveg tilbúin“
Framkvæmdin sé svipuð og í forseta- og Alþingiskosningum. Hægt verður að kjósa í öllum sveitarfélögum á kjördag og líka utan kjörfundar bæði erlendis og hérlendis fyrir kjördag.
Ástríður segir að nægur tími sé til stefnu þó að hann sé skammur.
„Þetta er vissulega áskorun. Þetta er stuttur tími og á sumarleyfistíma. En það má alveg hafa í huga að ef það er kosið til Alþingis ef þing er rofið, þá er líka stuttur tími. Slíkar þingrofskosningar fóru til dæmis fram fyrir einu og hálfu ári síðan. Þannig að við verðum alveg tilbúin tímanlega.“