Fjallað var um það á Vísi í síðustu viku að það líti út fyrir að færri leggi leið sína til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina. Hjalti Bergmar Axelsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Norðurlandi eystra, segir að búist sé við fleiri gestum á bæjarhátíðina Ein með öllu á Akureyri en alla jafna.
„Við gerum það. Það er svo sama sem að við erum að verða þess kynja um að það sé straumurinn sem liggur norður. Þar af leiðandi erum við að taka mið af því í okkar plönum, sérstaklega varðandi mannskap og gæslustörfin,“ segir Hjalti.
Vona að fólk vilji skemmta sér fallega
Undirbúningur er þegar hafinn.
„Við erum fyrst og fremst að funda mjög stíft og náið með hátíðarhöldura þannig að við séum sem best í synci. Við erum í góðu samstarfi við þá sem koma að gæslustörfum og varðandi leyfamálin, varðandi dyraverði og utanumhald um hátíðina sjálfa og þá viðburði sem þar eru.“
Einnig hugar lögreglan að auknu myndavélaeftirliti á hátíðarsvæðinu á Akureyrarvelli. Hann segist almennt bjartsýnn fyrir helginni.
„Við verðum bara að vona að hingað komi fólk til þess að skemmta sér fallega og fari varlega,“ segir Hjalti.