Mikið hefur verið rætt um mögulega andlitslyftingu hjá Anne Hathaway, en Anne hefur loksins svarað sjálf þessum sögum, en hún segir að umræðan sé í raun komin úr böndunum.
Anne, sem er 43 ára, sagði í nýju viðtali við Elle að hún hefði upphaflega ekki ætlað að tjá sig neitt um málið en fundist hún svo þurfa að svara einhverju.
Hún ákvað því að jarða þessar sögur um lyftingu fyrir fullt og allt og birti myndband þar sem hárgreiðslumaður hennar sýndi hvernig litlar fléttur væru faldar undir hárinu til að „lyfta“ andlitinu upp.
„Fólk er að gera ráð fyrir risastórum læknisfræðilegum ákvörðunum,“ sagði hún og bætti við að þetta væru einfaldlega tvær litlar fléttur sem væru að lyfta andlitinu.
Hún útilokar þó ekki að fara einhvern tímann í fegrunaraðgerð í framtíðinni, „Ég gæti alveg farið í andlitslyftingu einn daginn.“ Og ef hún ákveður að gera það, þá má hún það.
Enn sem komið er eru þetta bara tvær fléttur sem sjá um lyftinguna.
Stjörnufréttir Evu Ruzu eru í samvinnu við Extra og Sjónvarp Símans!