Fyrsti viðburðurinn í nýrri viðburðaröð Paradigm, sem kallast Ferðalag hugmyndanna, fer fram föstudaginn 24. apríl kl. 17:00 í Fantasíu, viðburðasal Vinnustofu Kjarvals við Austurstræti í Reykjavík. Viðburðaröðinni er ætlað að varpa ljósi á hvernig hugmyndir mótast, hvaðan þær koma og hvaða áhrif þær hafa. Á þessum fyrsta viðburði verða sjónum beint að tveimur konum sem hafa vakið athygli fyrir skoðanir sínar í opinberri umræðu.
Þar munu þær Hlédís Maren Guðmundsdóttir og Iva Maren Adrichem stíga á svið og fjalla um hugmyndafræðilega ferð sína og hvernig afstaða þeirra til hinna ýmsu málefna hefur þróast í gegnum tíðina.
Koma úr ólíkri átt
Hlédís Maren, sem er félagsfræðingur og pistlahöfundur, mun fjalla um eigin hugmyndafræðilega þróun og ræða sérstaklega viðhorf sín til mannréttinda og einstaklingsfrelsis.
Iva Maren, lögfræðingur og söngkona, mun fara yfir sinn bakgrunn og útskýra afstöðu sína í málum sem hafa verið umdeild. Þar á meðal eru umræðuefni sem tengjast kynbundnum réttindum og gagnrýni hennar á það sem hún telur markaðsvæðingu innan réttindabaráttu minnihlutahópa.
Spurningar úr sal og opið samtal
Að erindum loknum munu þær sitja fyrir svörum þar sem gestir fá tækifæri til að taka þátt í umræðunni og leggja fram spurningar.
Hægt er að kaupa hressingu á staðnum og aðstandendur hvetja áhugasama til að tryggja sér miða tímanlega, en miðaverð er 3.900 krónur og fjöldi sæta takmarkaður.
Hér er að tryggja sér miða hér.