Um það bil 400 jarðskjálftar hafa mælst undanfarinn sólarhring á Hellisheiði nærri Litlu kaffistofunni með uppruna um þrjá kílómetra vestan við Húsmúla.
Hrinan sem hófst í gær virðist ekki í rénun. Sá stærsti var af stærðinni þrír komma tveir um miðjan dag í gær og einnig hafa mælst nokkrir skjálftar milli tveir og þrír að stærð. Langflestir eru smáir.
Enn bendir allt til þess að skjálftarnir tengist jarðskorpuhreyfingum að sögn náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Engar vísbendingar séu um að rekja megi skjálftana til niðurdælingar vatns nærri Hellisheiðarvirkjun og engin merki séu um gosóróa.