Um ormalyf og sérfræðinga

Geir Ágústsson skrifar:
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, var nýlega fengin í viðtal til að ræða um Ivermectin, lyf sem upprunalega var notað sem ormalyf en hefur á áratugum fundið margar aðrar tegundir af notkun og virknieins og fjölmargar ritrýndar vísindagreinar votta um. Þar á meðal sterkar vísbendingar um að lyfið herji á krabbameinsæxli.
Sérfræðingurinn virtist samt ekki vita nokkurn skapaðan hlut í sinn haus og lýsir raunar slíkri vanþekkingu að Lyfjafræðingafélag Íslandi ætti að hugleiða að segja manneskjunni upp störfum en til vara að loka á frekari vandræðaleg viðtöl við hana.
Blaðamaður vann heldur enga heimavinnu og lét þvæluna leka óáreitta í gegnum hljóðnemann.
Sérfræðingurinn segir að lyfið sé ekki bannað á Íslandi og það er rétt, en það er bara selt sem ormalyf og álagningin slík að venjulegur skammtur kostar handlegg. Ekki bannað, en heldur ekki aðgengilegt.
Víða er þetta lyf selt í lausasölu og jafnvel dreift í stórum skömmtum til að vinna á landlægum sjúkdómum, ekki bara ormasýkingum.
Og sannarlega hjálpaði lyfið mörgum að sigrast á kóvít-veirunni þótt enginn hafi grætt mjög mikið á því, ólíkt þessum handónýtu bóluefnum sem Alex Berenson lýsti betur en flestir og var rækilega ritskoðaður fyrir:

Höfum við virkilega ekki lært nokkurn skapaðan hlut?
Af hverju er allt þetta ólæsa, heilaþvegna og lygna sérfræðingalið ennþá að þiggja góð laun fyrir að halda stólum sínum heitum og stöku sinnum mæta í viðtöl til að afhjúpa vanþekkingu sína og getuleysi í starfi?
Afsakið orðbragðið en ég er alveg gáttaður, og auðvitað fyrir löngu hættur að taka mark á fólki byggt á titlum og stöðugildum. Það er eitt að láta blekkja sig. Það er nokkuð annað að vita að það er verið að reyna blekkja okkur, en láta ekki blekkjast.