Forsvarsmenn Öryggisstofnunar Úkraínu segja að starfsmenn hennar hafi verið að rannsaka mannránstilraunina þegar útsendarar leyniþjónustu úkraínska hersins réðust á þá. Til skotbardaga kom.
Leyniþjónusta úkraínska hersins kallast í daglegu tali GUR eða HUR. Öryggisstofnun Úkraínu, sem er leyniþjónusta, kallast SBU eða SSU. Fregnir hafa borist af því að einn hafi látið lífið en það hefur ekki verið staðfest.
More footage from the site. Local media report one HUR officer was killed and two wounded in the Kyiv shooting involving HUR and SBU personnel. SBI representatives and the head of the SBU's Alpha unit arrived at the scene, and the sides agreed to unload their weapons for… https://t.co/ZO5WhEPno9 pic.twitter.com/3z8lk6DpvY
— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) September 2, 2026
Upplýsingar um málið eru enn á reiki en það snýr víst að Stepan Kaplunov, sem er næstráðandi í sveit sem kallast RVC. Hún er skipuð rússneskum sjálfboðaliðum sem berjast með Úkraínumönnum. Samkvæmt frétt Kyiv Independent reyndi einhver að ræna honum í Kænugarði á dögunum en það mun hafa misheppnast.
Útsendarar rússnesku leyniþjónustunnar FSB (arftaka KGB) munu samkvæmt SBU hafa reynt að ræna Kaplunov.
Þá segja forsvarsmenn SBU að þegar starfsmenn þeirra hafi verið á ferðinni til að rannsaka mannránstilraunina hafi hópur vopnaðra hermanna stöðvað þá og staðið í vegi þeirra. Að endingu hafi komið til skotbardaga.
Ukrainska Pravda hefur eftir SBU að hermennirnir hafi verið handteknir en þrír þeirra eru sagðir hafa særst.
Úkraínski miðillinn UA News hefur eftir ráðgjafa Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, að hann hafi krafið stjórnendur SBU og GRU um svör vegna skotbardagans. Kirill Budanóv, starfsmannstjóri Selenskís, segir að atvikið sé til rannsóknar.