Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur samþykkt lán upp á 690 milljónir dollara til Úkraínu. Lánið verður nýtt til að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og til endurbóta á stríðstímum.
Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Kristalina Georgieva, sagði að úkraínska þjóðin héldi áfram að sýna einstaka seiglu. Hún hvatti til skynsamlegrar stefnu í ríkisfjármálum og peningastefnu, ásamt aðgerðum til að viðhalda seiglu fjármálageirans.