Týndur vísindamaður fannst látinn með skotsár á höfði

Líkamsleifar Melissa Casias, vísindakonu sem starfaði við rannsóknarstofnun í Los Alamos, hafa fundist í skóglendi í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum, tæpu ári eftir að hennar var síðast vart.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Nýju-Mexíkó fundust mannabein í McGaffey Ridge-svæðinu í Carson-þjóðskóginum þegar göngumaður rakst á líkamsleifarnar. Við vettvang fannst einnig skotvopn. Yfirvöld hafa staðfest að um hafi verið að ræða Casias, sem var 53 ára gömul.
Lögreglan hefur enn ekki tilkynnt opinbera dánarorsök eða hvernig andlátið bar að. Rannsakandinn Thomas McNally, sem vann að málinu fyrir hönd foreldra Casias, sagði hins vegar í samtali við Daily Mail að líkamsleifarnar hefðu verið orðnar beinagrind að mestu leyti þegar þær fundust. Hann sagði jafnframt að skotsár hefði verið á höfuðkúpunni og að líkið hefði setið upp við tré. Að hans sögn voru engin merki um að dýr hefðu átt við líkamsleifarnar.
Casias hvarf þann 26. júní 2025 eftir að hún hafði ekið eiginmanni sínum til vinnu við Los Alamos-rannsóknarstofuna, þar sem þau störfuðu bæði. Hvarf hennar vakti mikla athygli í bandarískum fjölmiðlum, meðal annars vegna þess að hún var ein af að minnsta kosti tíu ríkisstarfsmönnum og vísindamönnum sem hafa látist eða horfið með dularfullum hætti frá árinu 2023.
McNally hefur þó hafnað því að dauðsfall Casias tengist starfi hennar eða öðrum sambærilegum málum. Hann telur hins vegar að grunur leiki á refsiverðu athæfi og hefur greint frá því að fjölskylda hennar hyggist höfða skaðabótamál gegn lögregluyfirvöldum í Nýju-Mexíkó vegna meintra mistaka við rannsókn málsins.
Rannsókn á andláti Melissu Casias stendur enn yfir.