Tveir voru í kvöld skotnir til bana á iðnaðarsvæði í þýsku borginni Hamborg. Nokkrir til viðbótar eru særðir samkvæmt fréttum þýskra miðla. Lögregla er með mikinn viðbúnað og notar þyrlur og dróna við leitina að ódæðismönnunum. Talsmaður lögreglunnar greindi fréttaveitunni DPA frá umfangi aðgerðanna og bætti við að almenningur væri ekki talinn í hættu.
Tveir skotnir til bana og nokkrir særðir í Hamborg