Tveir særðust þegar mikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju á Möltu í morgun. Mikinn reyk lagði frá verksmiðjunni, brak skaust í allar áttir, byggingar titruðu og rúður sprungu.
Fyrsta sprengingin varð klukkan 6:35 að staðartíma og skömmu síðar varð önnur stærri. Nokkrar minni sprengingar hafa fylgt í kjölfarið.
Enginn var í verksmiðjunni þegar sprengingin varð. Mennirnir sem slösuðust voru við vinnu á ökrum nærri verksmiðjunni.
Í frétt Times of Malta má sjá myndir og myndskeið af sprengingunni.