Tveir fluttir með þyrlu á sjúkrahús

Þyrla LandhelgisgæslunnarMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Tveir einstaklingar voru fluttir til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir umferðarslys sem varð við Fagurhólsmýri í Öræfum í morgun.
RÚV greinir frá málinu.
Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um bílveltu skömmu eftir klukkan 10.
Vegna slyssins var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, barst beiðnin um klukkan 10:40. Þyrlan var komin á vettvang um hálfri klukkustund síðar og tók þar tvo einstaklinga um borð.
Þyrlan lagði í kjölfarið af stað til Reykjavíkur með hina slösuðu til frekari aðhlynningar og mats á sjúkrahúsi.