Tveir liggja í valnum og minnst sex til viðbótar særðust í skotárás í miðborg Minneapolis í Bandaríkjunum síðdegis í gær að staðartíma.
Staðarmiðlar segja heimildarmenn kunnuga málinu staðfesta að árásarmaðurinn sé annar hinna látnu en ekki liggi fyrir hvernig dauða hans bar að.
Tveir hinna særðu eru lögreglumenn en ekki er vitað um líðan þeirra samkvæmt frétt AP-fréttaveitunnar. Lögregla var með mikinn viðbúnað í miðborginni eftir að tilkynning barst um skotárásina laust eftir klukkan fimm síðdegis að staðartíma. Lögregla bað almenning að halda sig fjarri.